Breytingar á viðmiðunarverðum þorsks, ýsu, karfa og ufsa
Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákeðið að breyta viðmiðunarverðum á þorski, ýsu, karfa og ufsa í viðskiptum milli skyldra aðila sem hér segir:
Viðmiðunarverð á slægðum þorski lækkar um 1,9%.
Viðmiðunarverð á óslægðum þorski lækkar um 4,9%.
Viðmiðunarverð á slægðri ýsu hækkar um 1,5%.
Viðmiðunarverð á karfa hækkar um 4,0%.
Viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa lækkar um 1,2%.
Framangreindar breytingar á viðmiðunarverðunum taka gildi frá og með 5. janúar 2018.