Kjaraviðræðurnar milli SSÍ og SFS
Viðræður SFS og sjómannasamtakanna hafa gengið vel liðna daga og sameiginlegur skilningur er með aðilum um helstu kröfur. Líkt og komið hefur fram í umræðu hafa sjómenn talið að leiðréttingar sé þörf á ójafnræði í skattalegri meðferð á dagpeningum. Sjómenn telja mikilvægt að úr þessu verði bætt. Þar sem um réttlætismál er að ræða hefur þetta veruleg áhrif í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir. Ráðherra hefur lagt til að fram fari heildstæð greining og skoðun á fæðis- og dagpeningum almennt á vinnumarkaði. Greining þessi er vafalaust jákvæð. Enn stendur þó útaf að fá viðurkenningu stjórnvalda á skattalegri meðferð á dagpeningagreiðslum til sjómanna.
Viðræðuslit milli SSÍ og SFS.
Upp úr viðræðum milli samtaka sjómanna og útvegsmanna slitnaði á fundi hjá sáttasemjara í gær.
Eftir fund hjá sáttasemjara þann 17. janúar var gert hlé á viðræðunum þar til í gær. Aðildarfélög SSÍ notuðu tímann til að funda með sjómönnum og gera þeim grein fyrir stöðunni. Að mati samninganefndar sjómanna voru samningsaðilar búnir að ræða sig niður á lausnir varðandi frítt fæði, frían vinnu- og hlífðarfatnað og fjarskiptakostnað skipverja.
Út af stóð að útvegsmenn voru ekki tilbúnir til að nálgast lausn varðandi breytingu á skiptaverði vegna lækkunar á olíuverði og eins voru þeir ekki tilbúnir að taka á sig kostnað til að bæta sjómönnum upp afnám sjómannaafsláttarins. Þeir voru hins vegar tilbúnir að koma að viðræðum við stjórnvöld um bætur til sjómanna vegna sjómannaafsláttarins.
Á fundum aðildarfélaga SSÍ með sjómönnum síðustu daga voru skilaboð sjómanna skýr um að ekki ætti að hvika frá kröfunni um breytingu á skiptaverðinu vegna lækkunar á olíuverðinu. Þar sem hvorugur samningsaðila var tilbúinn til að hreyfa sig í þessari megin kröfu sjómanna var deilan þar með komin í hnút. Ríkissáttasemjari sleit því fundi og er annar fundur ekki boðaður í deilunni.
Lækkun á viðmiðunarverði þorsks, ýsu, ufsa og karfa.
Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna fundaði í dag um viðmiðunarverð fyrir þorsk, ýsu, ufsa og karfa. Þar sem kjarasamningar sjómanna, sem fólu í sér nýja nálgun við ákvörðun á viðmiðunarverði fyrir þorsk, ýsu og karfa, voru felldir var ekki hjá því komist að ákvarða viðmiðunarverðin samkvæmt gildandi kjarasamningi. Þegar í lok nóvember var komin lækkunarþörf á viðmiðunarverð þorsks og ýsu. Þar sem nýr kjarasamningur með nýrri nágun við ákvörðun viðmiðunarverðs sem hefði leitt til óbreytts fiskverðs var felldur þá var ákveðið að láta viðmiðunarverðin vera óbreytt á þeim tímapunkti. Nú var hins vegar ekki staða til að bíða lengur.
Úrskurðanefndin ákvað því eftirtaldar breytingar ,á viðmiðunarverðum neðangreindra tegunda:
Slægður þorskur -10%, óslægður þorskur -7%, slægð ýsa -5%, óslægð ýsa -10%, karfi -7% og slægður og óslægður ufsi -3,7%.
Ákvörðunin tekur gildi 4. janúar 2017.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar um kjarasamninginn
Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi lauk kl. 12:00 á hádegi í dag.
Aðild að samningnum eiga öll aðildarfélög Sjómannasambands Íslands að Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur og Verkalýðsfélagi Vestfirðinga undanskildum.
Á kjörskrá voru 1.098 sjómenn og af þeim kusu 743 eða 67,7%.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var þessi:
Já sögðu 177 eða 23,82% af þeim sem kusu.
Nei sögðu 562 eða 75,64% af þeim sem kusu.
Auðir seðlar voru 4 eða 0,54%
Samkvæmt framansögðu var því samningurinn felldur með meiri hluta greiddra atkvæða. Verkfall hefst því kl. 20:00 í kvöld (14. desember).
Fundur í Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á óslægðum þorski og slægðri og óslægðri ýsu um 5% og viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa um 3,7%. Verðlækkunin tekur gildi frá og með 2. desember 2016.
Auglýsingar frá SFÚ.
Samtök fiskvinnslu og útflutnings (SFÚ) auglýsa þessa dagana mikið eins og líklega hefur ekki farið fram hjá mörgum. Inntak auglýsinga þeirra er að samtökin þurfi að greiða markaðsverð fyrir fiskinn, en útgerðin fái hann aðein á 80% af markaðsverði í boði sjómanna. Ekki er alveg ljóst hver tilgangur þessara auglýsinga er, en þetta eru sömu samtök og sendu frá sér eftirfarandi í ályktun frá aðalfundi samtakanna árið 2014:
"SFÚ telur mikilvægt að skiptaverð verðlagsstofu gildi um uppgjör við sjómenn hvort sem um er að ræða bein viðskipti með fisk eða sölu á markaði.........."
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem andar köldu frá þessum samtökum í garð sjómanna. Ástæða þess er hins vegar ekki vituð enda erfitt að taka mark á samtökum sem haga sér með þessum hætti.
Kjarasamningur milli SSÍ og SFS frá 14. nóvember og viðbót 18. nóvember 2016
Kjarasamningur milli SSÍ og SFS var undirritaður þann 14. nóvember síðastliðinn og viðauki þann 18. nóvember þar sem 12. grein um veikinda- og slysarétt í skiptimannakerfi er felld brott og sett í bókun. Að kjarasamningnum standa öll aðildarfélög SSÍ að Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur undanskildum. Samhliða undirritun kjarasamningsins þann 14. nóvember síðastliðinn var verkfalli þeirra aðildarfélaga SSÍ sem að samningnum standa frestað frá kl. 20:00 þann 15. nóvember til kl. 20:00 þann 14. desember næstkomandi.
Kjarasamningurinn er nú í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna þeirra félaga sem standa að samningnum og er hægt að kjósa um samninginn hér fyrir neðan auk þess sem hægt er að nálgast samninginn á pdf formi ásamt kynningarefni. Atkvæðagreiðslan stendur til kl. 12:00 þann 14. desember.
30. þing Sjómannasambands Íslands
30. þing Sjómannasambands Íslands var haldið dagana 24. og 25. nóvember 2016 á Grand Hóteli Reykjavík. Ályktanir þingsins eru undir ályktanir.